Svæðið í kringum Leirvogstunguskóla

Svæðið í kringum Leirvogstunguskóla

Bæta þarf svæðið í kringum Leirvogstunguskóla. Grasið á milli körfuboltavallarins og fótboltavallarins er virkilega hættulegt. Mishæðótt drullusvað sem þarf að ganga betur frá svo enginn slasi sig og hægt sé að leika þarna. Lýsingin á svæðinu er einnig eitthvað sem þarf að skoða og bæta. Það mætti einnig bæta við leiktækjum á svæðið sem og mála leiki á steypt svæði. Gera svæðið að leiksvæði fyrir börn á öllum aldri.

Points

Í hverfinu búa mörg börn og Leirvogstunguskóli og svæðið í kringum hann er vinsælt svæði að fara að leika à og væri gaman að hafa meira í boði.

Nú hafa 29 verkefni verið valin í íbúakosningu Okkar Mosó 2021 31.-6.júní. Þessi hugmynd var ekki valin að þessu sinni en önnur sambærileg hugmynd valin. Við hvetjum þig til þess að taka þátt í að velja hugmyndir og að hvetja alla Mosfellinga 15 ára og eldri til þess að kjósa hér: kosning2021.mos.is. Nánari upplýsingar er að finna á mos.is/okkarmoso

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information